Stærðir S, M, L og XL. Prjónað úr Léttlopa frá Ístex á prjóna nr. 3 1/2 og 4.
Peysan er prjónuð í hring frá hálsmáli og niður. Hækkun á bakstykki er prjónuð eftir berustykki. Þá er bolurinn kláraður og síðast ermar. Magn af lopa (50. g. dokkur): Granatrauður 1409 (aðallitur); 7 (8) 9 (10) - Lambagras 1705; 1 (1)1 (1) - Bleikur 1412; 1 (1) 1 (1) - Flöskugrænn 1405; 1 (1) 1 (1) - Blágrænn 9423; 1 (1) 1 (1) - Jökulblágrænn 1404; 1 (1) 1 (1) - Gulmura 1703; 1 (1) 1 (1) - Apríkósugulur 1704; 1 (1) 1 (1) - Gulgrænn 9426; 1 (1) 1 (1) - Fölgrár 0054; 1 (1) 1 (1) - Ax 1419; 1 (1) 1 (1).
Stærð: | S | M | L | XL |
Yfirvídd | 103 cm. | 107 cm. | 112 cm. | 116 cm. |
Lengd á bol frá handvegi | 41 cm. | 42 cm. | 43 cm. | 44 cm. |
Ermalengd frá handvegi | 46 cm. | 47 cm. | 48 cm. | 49 cm. |