Stærðir S, M, L og XL. Prjónað úr Léttlopa frá Ístex á prjóna nr. 4 og 5. Bolur og ermar eru prjónuð í hring frá uppfitjun neðst. Við handveg eru ermar og bolur sameinað og berustykki prjónað í hring upp að hálsmáli. Í lokin er saumað í vél upp og niður framstykki og klippt á milli. Listar prjónaður og rennilás saumaður í. Magn af garni (50 g. dokkur):
Grár 0057, 5 (5) 6 (7) - Sauðsvartur 0052, 2 (2) 2 (2) - Hvítur 0051, 1 (2) 2 (2) - Bleikur 1412, 1 (1) 1 (1) - Lambagras 1705, 1 (1) 1 (1)
"Gunnhildur" Dömupeysa með rennilás
1.200krPrice