Jæja, eins og ég sagði ykkur í síðustu færslu er afmæli Bíbíar framundan og af því tilefni fékk hún nýjan kjól, peysu, sokka og hárband í stíl. Prjónað úr Cottonsoft frá King Cole á prjóna nr. 3 1/2 og 4. Mjúkt garn sem gaman er að vinna með. Hér er svo brúðan í dressinu :)




Ég skreytti hárbandið með hekluðu blómi sem ég skreytti svo frekar með fínum satínborða og tölu eins og ég setti á peysujakkann og kjólinn. Voða fín !
Comments